Framkvæmdastjórn

Framkvæmdastjórn HNLFÍ

Ólafur Sigurðsson er framkvæmdastjóri HNLFÍ. Hann er fæddur 1955 og er með meistaragráðu í viðskiptum frá Viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn. Hann hóf störf 2004 en starfaði áður við auglýsingagerð, útflutning, stjórnendaráðgjöf hjá KPMG og sem skrifstofustjóri (Head of Administration) hjá EFTA í Brussel og Genf. Framkvæmdastjóri sér um daglegan rekstur, annast fjármál, skipuleggur og samhæfir rekstur, þannig að fyllstrar hagkvæmni sé gætt. Framkvæmdastjóri ber ábyrgð gagnvart rekstrarstjórn á öllum málefnum er varða áætlanir, skýrslugerð og rekstrarákvarðanir og að öll ákvæði þjónustusamningsins séu uppfyllt.

 

 

Erla Gerður Sveinsdóttir er yfirlæknir HNLFÍ. Hún hóf störf í september 2010. Erla útskrifaðist frá Læknadeild HÍ árið 1994 og lauk sérfræðinámi í heimilislækningum árið 2004. Hún starfaði á heilsugæslunni í Salahverfi í Kópavogi frá árinu 2004 til 2009 og í offitueymi Reykjalundar frá 2009-2010. Erla er ein af stofnendum Heilsuborgar og hefur starfað þar samhliða öðrum stöfum frá því fyrirtækið hóf starfsemi. Erla starfaði áður meðal annars í heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, í heilsugæslu á landsbyggðinni, á ýmsum deildum Landspítala, á svæfinga- og gjörgæsludeild Ullevåll sjúkrahússins í Osló, með breska hernum við friðargæslu í Bosníu og Króatíu og sem læknir á þyrlu Landhelgisgæslunnar.
Yfirlæknir kemur fram fyrir hönd stofnunarinnar vegna þeirra málefni er heyra undir hann og ber ábyrgð á faglegum rekstri hennar í samræmi við starfsskyldur lækna. Yfirlæknir skal sjá til þess að lækningar á stofnunni séu ávallt í samræmi við stefnu og markmið stofnunarinnar og  
annast tengsl við stofnanir og aðila innan lands og utan í sambandi við samstarf og endurmenntun á sviði lækninga. Yfirlæknir situr í framkvæmdastjórn ásamt framkvæmdastjóra og hjúkrunarforstjóra.

 

Magna Fríður Birnir er hjúkrunarforstjóri HNLFÍ, hún hóf störf 2008 og er menntaður hjúkrunarfræðingur, með MSc í stjórnun. Hún hefur starfað í fjölda ára sem hjúkrunarfræðingur og sem stjórnandi bæði hjá Eimskip, Skýrr og síðast vann hún á LSH sem forstöðumaður gæðamála og innri endurskoðunar. Hjúkrunarforstjóri skipuleggur og ber faglega ábyrgð á hjúkrun á HNLFÍ.