Heilsudagar

ALLIR VELKOMNIR Á HEILSUSTOFNUN NLFÍ

Heilsustofnun NLFÍ býður gestum að koma til dvalar til lengri eða skemmri tíma til heilsueflingar. Til að koma í heilsueflingu er ekki þörf á beiðni frá lækni .

Það er margsannað að forvarnir og heilsuefling eru mikilvæg fyrir andlega og líkamlega vellíðan. Í starfi Heilsustofnunar NLFÍ er lögð áhersla á að dvalargestir nái sem bestri líðan bæði á líkama og sál. Fyrir þá sem vilja enn frekari þjónustu er heilsubúð, snyrtistofa og hárgreiðslustofa innan seilingar. 

SKOÐA HEILSUDVÖL OG VERÐ HÉR

ATH:

  • Staðfesta þarf pöntun með greiðslukorti
  • Afpanta skal dvöl með a.m.k. tveggja daga fyrirvara, að öðrum kosti þarf að greiða afbókunargjald sem samsvarar verðgildi einnar nætur.
  • Heilsustofnun er reyklaus stofnun. Reykingar og áfengisneysla eru hvorki leyfðar inn á stofnunini eða á lóð hennar. Ef komið er á Heilsustofnun undir áhrifum áfengis þá er viðkomandi vísað í burtu.
  • Öll verð eru í íslenskum krónum á mann fyrir eina nótt og gilda árið 2010.