Þjónustuhús


Teikning af Lækjarbrún 23
Nýr og heilsusamlegur lífsstíll - Þjónustuhús ÍAV við Heilsustofnun NLFÍ

Þjónustuhúsin við Lækjarbrún við HNLFÍ veita þér tækifæri til að njóta lífsins í faðmi einstakrar náttúru og hafa jafnframt aðgang að margvíslegri þjónustu Heilsustofnunar NLFÍ. Húsin eru sérstaklega glæsileg. Byggð af Íslenskum aðalverktökum (ÍAV) og hönnuð af Hróbjarti Hróbjartssyni arkitekt hjá VA arkitektum. Hönnunin tekur sérstakt mið af þörfum 50 ára og eldri en henta samt öllum aldurshópum. Þau eru staðsett steinsnar frá Heilsustofnun NLFÍ.

Rómuð náttúrufegurð, friðsæld og nálægð við hvers kyns þjónustu og heilsurækt eru nokkrir af helstu kostum íbúðanna. Fallegar gönguleiðir allt í kring, golfvöllur, hesthús og margvísleg afþreying á svæðinu og kyrrð smábæjarins – allt hjálpar til að gera staðinn að sælureit.

Húsin eru glæsileg raðhús á einni hæð. Í eldhúsi nær horngluggi niður að gólfi sem setur skemmtilegan svip á húsin auk þess að hleypa mikilli birtu inn í þau. Útveggir verða klæddir litaðri álklæðningu. Gluggar verða álklæddir timburgluggar. Húsin munu því þarfnast lítils viðhalds.

Kaupendur geta valið um eik eða mahóní í hurðum og innréttingum. Í eldhúsi verður keramikborð, blástursofn og gufugleypir með kolasíu. Heimilistæki verða frá AEG, Siemens eða sambærileg. Innréttingar eru sérstaklega vandaðar, en óski kaupandi eftir því að hanna íbúðina að eigin smekk er tekið vel í slíkar óskir. Þær þurfa þó að koma fram í tíma.

Íbúðirnar verða afhentar fullbúnar án gólfefna að undanskyldum anddyris- og þvottahúsgólfum, auk baðherbergja, sem verða flísalögð. Gólfhiti verður í húsunum. Gegnt verður út í garð bæði frá eldhúsi og stofu.

Lóðin verður frágengin samkvæmt teikningu lóðarhönnuðar með snjóbræðslulögnum undir hluta hellulagðra göngustíga. Bílastæði verða malbikuð og afmörkuð með kantsteinum og merkt máluðum línum. Stígar og verandir verða hellulagðar. Lóð verður þökulögð og limgerði plantað við verandir.

Þrjár stærðir eru í boði: 3ja herbergja, 111 fm. 3ja herbergja, 100 fm. 2ja herbergja, 86 fm. Allar nánari upplýsingar eru veittar hjá Íslenskum aðalverktökum (ÍAV) í síma 530 4200 eða á www.iav.is. Einnig upplýsingar hjá Byr í Hveragerði s.483 5800

Einnig er hægt að fá upplýsingar um þjónustuíbúðirnar á Heilsustofnun NLFÍ, hjá Guðrúnu Friðriksdóttur þjónustustjóra eða hjá Inga Þór Jónssyni almannatengslafulltrúa, í síma 483 0300.

Við kaup á þjónustuíbúðum við Lækjarbrún gerast kaupendur aðilar að samningi við HNLFÍ þar sem þeir fá aðgang að viðamikilli þjónustu HNLFÍ gegn greiðslu mánaðarlegs grunngjalds. Veitt þjónusta og aukagjöld sjá hér.
Þjónustusamninginn er hægt að skoða hér.

Byr í Hveragerði s.483 5800