Læknisfræðileg endurhæfing

Öll íhlutun sem miðar að því að draga úr skerðingu, fötlun og örorku af völdum sjúkdóma og slysa fellur undir læknisfræðilega endurhæfingu. Með læknisfræðilegri endurhæfingu er átt við aðferð þar sem saman fara félagslegar, læknisfræðilegar, sálfræðilegar og tæknilegar úrlausnir, sem miða að því að einstaklingurinn nái mestri mögulegri færni og lífsgæðum og viðhaldi þeim.

Meðferð við læknisfræðileg endurhæfingu er greidd að stórum hluta af íslenska ríkinu. Í því tilfelli er skilyrði að læknir sendi inn beiðni fyrir dvöl. Læknir getur farið inn á www.hnlfi.is og valið “fyrir fagfólk/beiðnir” og útfyllt beiðni. Beiðnin sendist í fax 483 0320  eða póstfang HNLFÍ b/t Innlagnaritari, Grænumörk 10, 810 Hveragerði. 

Allir sem sækja um fá sent svarbréf þar sem kemur fram tilboð um dvöl og dvalartíma. Hægt  er að velja á milli einbýli eða tvíbýli, en dvalargjaldið fer eftir gistiaðstöðunni. Með svarbréfi fá  sjúklingar sent eyðublað þar sem þeir þurfa að merkja við ýmsar séróskir sínar, þ.m.t. um herbergi.

Verðskrá er að finna hér

Allar frekari upplýsingar eru veittar af innlagnaritara í síma 483 0300. Símatími innlagnafulltrúa er alla virka daga frá kl. 9:00 til 10:00 og eftir hádegi frá kl..14:00 til 15:00

Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á veffang beidni@hnlfi.is.