Næring og matur

Skoða matseðilÁ Heilsustofnun er litið á matinn sem hluta af meðferð. Alla daga er boðið upp á fjölbreytt grænmetisfæði, auk fisks 2x í viku. Boðið er upp á heilsute HNLFÍ sem blandað er úr villtum íslenskum lækningajurtum með hverri máltíð. Leitast er við að bjóða einungis upp á ferskt hráefni og sem minnst af unnum matvælum. 

Allir dvalargestir sem dvelja í lengri eða skemri tíma á Heilsustofnun er boðið upp á fullt fæði. Það sem aftur á móti fáir vita um er að það er hægt að koma við í matsalinn og kaupa sér staka máltíð. Hægt að kaupa matinn til að borða á staðnum eða taka með sér. Það er upplagt að nýta sér þetta þegar verið er að heimsækja vin eða ættingja eða einfaldlega löngun er í góðan og
hollan mat.

Í matsalnum er einnig hægt að kaupa heilsubrauð, uppskriftabækling eða heilsute. Heilsuteið er handtýnt, sérvalið og blandað af sérfræðingum Heilsustofnunar.