Næringaráherslur

Maturinn á Heilsustofnun Náttúrulækningafélags Íslands

Boðið er upp á heilsufæði á HNLFÍ. Sérstök áhersla er lögð á grófmeti úr jurtaríkinu eins og til dæmis baunir, hýðishrísgrjón, ýmis konar heil korn og svo auðvitað grænmeti og ávexti. Fæðið inniheldur einnig egg og mjólkurvörur. Leitast við að nota eins lítið af salti, harðri fitu og sykri eins og mögulegt er.

Það er stefna HNLFÍ  að hafa sem minnst af unnum matvælum, við veljum okkar hráefni mjög vandlega og allur matur er eldaður frá grunni á staðnum.

Brauðið er bakað á staðnum og er 100 % heilhveiti. Hluti af grænmetinu og öðrum matjurtum sem boðið er upp á er lífrænt ræktað í eigin gróðurhúsum. Gróðurhúsin og allt landsvæði Heilsustofnunar er yfirlýst svæði án erfðabreyttra lífvera.

Kjöt er ekki á matseðlinum en boðið er upp á fiskrétt tvisvar í viku og mikið framboð er af mjólkurvörum. Ekki er boðið upp á kaffi en þess í stað er boðið upp á  venjulegt te og  te hússins sem er gert úr  þekktum íslenskum lækningajurtum.

Litið er  á matinn sem hluta af fræðslu og meðferð dvalargestanna. Þeir sem eru í megrun fá fræðslu um rétta skammtastærð, einnig er boðið upp á orkubætt fæði  og næringardrykki fyir þá dvalargesti sem á því þurfa að halda. Þeir sem þurfa á sérfæði að halda fá ráðgjöf hjá næringarráðgjafa. Reglulega er boðið upp á sýnikennslu í gerð grænmetisrétta sem matreiðslumeistari sér um.



Stefna Heilsustofnunar NLFÍ
í næringar- og manneldismálum

Fjölbreytni í fyrirrúmi

Áhersla er lögð á fjölbreytni í fæðuvali. Sérstök áhersla er lögð á grænmeti, ávexti,
fisk, fituskertar mjólkurvörur, gróf brauð, kornmat og vatn til drykkjar.
Samsetning fæðunnar
Stuðst er við „Ráðleggingar um mataræði og næringarefni (2006)” frá Lýð-
heilsustöð við samsetningu fæðunnar á Heilsustofnun. Þó er gengið lengra í
takmörkun á sykri en miðað er við í ráðleggingunum
Sérstaða HNLFÍ
       §   Boðið er upp á heilsufæði á HNLFÍ. Litið er á matinn sem þátt í fræðslu og 
     meðferð.
       §    Það er stefna HNLFÍ  að matur sé matreiddur frá grunni á staðnum og
     áhersla er lögð  á að velja hráefni vandlega út frá ferskleika, gæðum og sem
     mest án aukefna.
       §   Sérstök áhersla er lögð á grófmeti úr jurtaríkinu, til dæmis baunir, hýðis-
     hrísgrjón, ýmis konar heilt korn, grófmalað mjöl ásamt grænmeti og ávöxtum.
       §    Alla daga er í boði sykurlaust meðlæti í tetíma. Á sunnudögum er auk þess
     boðið upp á sætar kökur.
       §   Grænmeti, kryddjurtir og annað sem ræktað er á staðnum er lífrænt ræktað. 
     Við innkaup á matvælum er lögð áhersla á að velja íslenska framleiðslu. 
 §  Kjöt er ekki á matseðli.
       §    Boðið er upp á te í úrvali m.a. te hússins sem er gert úr íslenskum lækninga-
     jurtum, sem týndar eru af starfsmönnum stofnunarinnar.
           Ekki er boðið upp á kaffi.

Hér er hægt að nálgast Næringarstefnu Heilsustofnunar NLFÍ (word skjal).