Krabbameinslína

Fyrir hverja er endurhæfing á krabbameinslínu ?
Meðferðarlínan er hugsuð fyrir þá sem hafa verið í krabbameinsmeðferð og þurfa á uppbyggingu og þjálfun að halda.
Flestir skjólstæðingar Heilsustofnunar kjósa að koma eftir að virkri krabbameinsmeðferð er lokið en endurhæfing getur farið fram á milli meðferða.

Hvernig er meðferð háttað?
Meðferðarskrá er unnin með skjólstæðningnum og tekið er mið af markmiðum, þörfum og aðstæðum hvers og eins.
Meðferð í hóp getur m.a. falist í þrekþjálfun í tækjasal, þolgöngu, leikfimi, vatnsleikfimi, slökun. Þjálfunin fer fram daglega undir eftirliti fagfólks.
Eftir þörfum er veitt einstaklingsmeðferð t.d. sjúkraþjálfun, sjúkranudd, stuðningsviðtöl, hjúkrunarmeðferð á geisla eða skurðsvæði, nálastungur næringarráðgjöf eða vatnsmeðferð.

Áhersla er lögð á reglulegt, hollt og gott mataræði, útiveru og hvíld. Boðið er upp á grænmetisfæði alla daga vikunnar en fiskur er tvisvar í viku.
Umhverfisbreyting og næði getur haft afar jákvæð áhrif á líðan einstaklingsins sem er að ná aftur vopnum sínum eftir alvarlegt áfall vegna skjúkdóms.

Skjólstæðingum er leiðbeint um þjálfun og lífshætti eftir að heim kemur, og þeim kynnt bjargráð eða leiðir til þess að viðhalda árangri sem náðst hefur.

Hve löng er meðferðin?
Mælt er með 4 vikna meðferð sem hægt er að framlengja um eina til tvær vikur ef þörf krefur. Einnig er hægt að komast í skemri dvöl ef aðstæður einstaklingsins leyfa ekki annað. Gerð er krafa um að skjólstæðingar séu að mestu sjálfbjarga með athafnir daglegs lífs til þess að þeir fái sem mest út úr endurhæfingunni.

Hvert er markmiðið með meðferðinni?
Að auka hæfni einstaklings til að lifa sem eðlilegustu lífi þrátt fyrir sjúkdóm og að auka lífsgæði með því að:
auka líkamlegt og andlegt þrek
bæta sjálfsbjargargetu og færni í daglegu lífi
minnka verki
bæta svefn
draga úr streitu eða stjórna henni
bæta næringarástand
hætta reykingum (ef það á við)

Hvaða fræðsla er í boði?
Boðið er upp á fjölbreytta fræðslufyrirlestra:
Áhrif slökunar
Andleg líðan fólks með verki
Kvíðastjórnun
Mataræði
Þunglyndi
Áhrif þjálfunar á verki
Hreyfing og streitustjórnun
Svefn
Húmor

Teymi:
Á Heilsustofnun er starfandi krabbameinsteymi sem vinnur saman að framkvæmd meðferðar.
Í teyminu eru læknir, hjúkrunarfræðingur, sjúkraþjálfari og sjúkranuddari. Auk þess koma næringarráðgjafi og sálfræðingur að meðferðinni eftir þörfum.