Fyrir hverja er öldrunarendurhæfing?
Öldrunarendurhæfing er fyrir eldri einstaklinga sem hafa andlegt og líkamlegt þrek til að taka þátt í virkri meðferð í hóp.
Í hverju felst meðferðin?
Í upphafi dvalar eru framkvæmd líkamsfærnipróf, gert mat á byltuhættu og metin þörf fyrir sértæka meðferð. Meðferðarskrá er sett upp í samráði við dvalargest og miðuð við getu hvers og eins. Líkamsþjálfun getur falist í jafnvægisleikfimi, vatnsleikfimi, göngu og styrktarþjálfun.
Teymið metur þörf á sértækri meðferð sem getur t.d. verið viðtalsmeðferð, næringarráðgjöf, sjúkranudd, sjúkraþjálfun, nálastungur, vaxmeðferð, vatnsmeðferð, hitameðferð. Öll meðferð er ætíð undir eftirliti fagfólks.
Hversu löng er meðferðin?
Meðaldvalartími er 4 vikur.
Markmið meðferðar?
Markmið meðferðarinnar er að auka líkamlega, andlega og félagslega færni fólks. Með því aukast sjálfsbjargargeta og lífsgæði.
Hvernig er fræðslu háttað?
Fjölbreytt fræðsla er í boði á Heilsustofnun, m.a. um: mikilvægi þjálfunar, varnir gegn byltum, minnisþjálfun, beinþynningu, svefn, kvíða, þunglyndi og mataræði.
Umræðufundir og einstaklingsviðtöl eru hluti af þjónustu öldrunarendurhæfingar.
Hverjir eru í teyminu?
Haldið er utan um meðferðina af teymi fagfólks sem samanstendur af lækni, hjúkrunarfræðingi, sjúkraliða, sjúkraþjálfara, íþróttafræðingi og sjúkranuddara.
Í lok dvalar reynum við að finna leiðir fyrir dvalargesti til að viðhalda árangri eftir útskrift.





