Stuðningslína

Flestir lenda í lífskreppu einhvern tíma á ævinni. Á stuðningslínu innritast þeir sem fyrst og fremst koma til dvalar á Heilsustofnun vegna álags, streitu, kvíða eða þunglyndis, eða til að jafna sig eftir áföll eða missi. Oft fara saman andlegir og líkamlegir erfiðleikar. Líkamlegir sjúkdómar taka oft sinn toll af andlegu atgerfi.

Hvernig er unnið:
Á árum áður var talað um Heilsuhælið en ekki Heilsustofnun, okkur finnst gott að hugsa um hæli í bestu merkingu þess orðs, þ.e. sem griðastaður, hvíld og skjól. Margir hafa gott af því að fara úr sínu umhverfi og sinna sjálfum sér um stund. Reglubundin hreyfing og mataræði skiptir miklu máli, en á Heilsustofnun eru einnig eru veitt einstaklingsbundin viðtöl við sálfræðinga eða hjúkrunarfræðinga. Allir hafa þeir áralanga reynslu af klínísku meðferðarstarfi.
Vandi þeirra sem innritast á stuðningslínu er afar mismunandi. Þess vegna er einstaklingsbundin nálgun afar nauðsynleg og í viðtölum er unnið að þeim markmiðum sem dvalargestir setja sér sjálfir. Mikill hluti af tímanum á Heilsustofnun fer í líkamlega uppbyggingu, stundaskráin er sett saman eftir því sem hentar hverjum og einum og reynt að finna jafnvægi milli áreynslu og álags annars vegar og hvíldar og slökunar hinsvegar. Líkamleg uppbygging er meðal annars falin í; leikfimi, göngum, sjúkraþjálfun, sjúkranuddi, leirböðum og heilsuböðum. Eftir dvölina er það von okkar að fólk sé færara að takast á við daglegt líf sitt utan stofnunarinnar, bæði í atvinnulegu og félagslegu tilliti.

Gjörhygli-námskeið er nýjung á Íslandi, sem við byrjuðum að þróa við Heilsustofnun NLFÍ árið 2006. Margir sem koma til dvalar á stuðningslínu sitja gjörhyglinámskeið. Sjá nánar hér

Teymi:
Á stuðningslínu starfar þverfaglegur hópur; sálfræðingar, hjúkrunarfræðingar, sjúkraþjálfari, íþróttakennari, sjúkranuddari og læknir.