MEÐFERÐ VEGNA VERKJA
Margra ára reynsla meðferðaraðila af meðhöndlun vegna langvinnra verkja er á Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði og hafa fjölmargir notið góðs af. Reynslan og rannsóknir sýna að fólk með langvarandi verkjavandamál fer smám saman inn í vítahring sem erfitt er að komast út úr af sjálfsdáðum. Flestir sem hingað sækja eru þegar búnir að leita sér hjálpar víða, en oft hefur árangurinn látið á sér standa. Við viljum leggja okkar af mörkum til að aðstoða fólk við að rjúfa vítahringinn og ná tökum á vandamálunum. Hugmyndin er að dvölin á Heilsustofnun marki upphafið að breyttum viðhorfum og lífsstíl.
Markmiðið er að einstaklingurinn auki færni í sínum daglegu athöfnum, öðlist getu til að taka virkari þátt í samfélaginu og auki lífsgæði sín með að:
- öðlast hæfni í eigin bjargráðum
- öðlast færni í að finna jafnvægi milli hreyfingar og hvíldar
- efla líkamsvitund sína og bæta beitingu líkamans
- vinna á virkan hátt að bættri andlegri líðan
- öðlast getu til að stjórna ástandi sínu og bæta úthald í daglegu lífi
- læra að virða mörk sín
- bæta svefn
- læra streitustjórnun
- auka líkamlegan og andlegan þrótt
- í lok meðferðar leggi einstaklingurinn drög að framhaldinu með aðstoð fagfólks og marki upphafið að breyttum lífsstíl
Þátttakendur í verkjameðferð
Þeir sem helst hafa gagn af verkjameðferð á vegum verkjateymisins er fólk á vinnufærum aldri með langvarandi stoðkerfisverki, þar á meðal vefjagigt. Við höfum tekið á móti fólki sem enn er á vinnumarkaði en einnig þeim sem eiga í erfiðleikum með að halda starfsþreki eða jafnvel hættir á vinnumarkaði.

MEÐFERÐARÚRRÆÐI
Meðferð í verkjahóp
Meðferð í verkjahóp er góður kostur fyrir stóran hóp fólks með langvinna verki. Áhersla er lögð á hópefli, fræðslu, þjálfun, hvíld og hugleiðslu. Einstaklingurinn er hvattur til að læra að nota hugleiðslu og líkamsvitundaraðferðir til að takast á við andleg og líkamleg einkenni sem tengjast langvinnum verkjum. Grunnur er lagður að sjálfshjálp og ráðleggingar veittar um framhaldið.

Á meðferðarskrá verkjahóps er margs konar hópþjálfun, fræðsla, slökun og hugleiðsla. Fræðslu og umræðufundir varða heilsu og færni þar sem tekin eru fyrir ýmis málefni sem brenna á flestum þeim sem þjást hafa af langvinnum verkjum. Lögð er áhersla á að einstaklingurinn læri að nota hugleiðslu til að takast á við andleg einkenni í tengslum við langvinna verki. Aðferðin sem notuð er kallast gjörhygli (e. mindfulness meditation) og er nýjung á Íslandi. Líkamsvitund er notuð til að þjálfa einstaklinginn í að greina á milli æskilegrar og óæskilegrar líkamsstöðu og hreyfinga. Þannig aukast gæði hreyfinga í daglegu lífi og fólk lærir að beita sér meðvitað. Líkamsvitund og gjörhygli tengjast á ýmsan hátt þar sem verið er að vinna með upplifun einstaklingsins andlega og líkamlega. Í annarri hópameðferð svo sem göngu, leikfimi og vatnsleikfimi er vitund einstaklingsins virkjuð áfram og hann hvattur til að yfirfæra nýja færni á sitt daglega líf. Til að meðferðin skili langtímaárangri þarf hver og einn að vinna sjálfur að bættri líðan með ofangreindum aðferðum.
Eitt lykilatriðið í að læra inn á eigin mörk og bjargráð er að virkja sjálfan sig. Þess vegna er ekki veitt meðferðarnudd, nálastungur eða sprautumeðferð í verkjahóp.
Einstaklingsmeðferð er í formi greiningar, skoðunar, ráðgjafar og stuðnings.
Meðferð á verkjalínu
Meðferð á verkjalínu er fyrst og fremst ætluð fólki með langvinna verki sem getur af einhverjum ástæðum ekki nýtt sér meðferð í verkjahópnum. Einnig fer fólk sem kemur aftur á stofnunina eftir að hafa verið í verkjahóp inn á verkjalínu og fær þá framhalds meðferð. Meðferð á verkjalínu getur hentað fólki sem hefur nýlega gengist undir aðgerð vegna stoðkerfisvandamála svo sem vegna brjóskloss. Þó þarf að vera liðinn sá tími sem nauðsynlegur er fyrir gróanda, oftast um 4-6 vikur frá aðgerð.
Á meðferðarskrá verkjalínu eru hópþjálfun, fræðsla, hvíld og slökun en einstaklingsmeðferð er metin af teyminu hverju sinni.
Verkjateymi
Hópur fagfólks vinnur saman að framkvæmd verkjameðferðarinnar. Teymið leggur sig fram við að upplýsa einstaklinginn um gagnsemi meðferðarúrræða svo sátt sé um þá leið sem einstaklingurinn í samvinnu við teymið velur. Í teyminu starfa hjúkrunarfræðingar, íþróttakennari, læknir, sjúkraþjálfarar, sjúkraliði og sjúkranuddari. Allir meðferðaraðilarnir hafa mikla reynslu. Einnig hefur teymið aðgang að sálfræðingum og næringarráðgjafa eftir þörfum.

Hjúkrunarfræðingar teymisins eru sérþjálfaðir í hugrænni atferlismeðferð og gjörhygli. Þeir hafa sjúkraliða sér til aðstoðar.
Læknir teymisins er endurhæfingarlæknir með sérþekkingu á verkjameðferð.
Sjúkraþjálfarar teymisins eru sérþjálfaðir í verkjameðferð og er einn þeirra sérfræðingur í bæklunarsjúkraþjálfun.
Íþróttakennari teymisins hefur áralanga reynslu af verkjameðferð og sérþjálfun í vatnsleikfimi.
Sjúkranuddari teymisins hefur sérhæft sig í slökunarnuddi fyrir fólk með verki.
Árangur
Meðferð í formi verkjahópa hófst í september 2001. Frá þeim tíma hefur árangur verið mældur með verkjakvarða, þol og þrekprófum og spurningarlista um heilsutengd lífsgæði. Í stuttu máli má segja að marktækt hafi þol og þrek aukist, verkir minnkað og lífsgæði þessa hóps batnað verulega. Ítarlegar rannsóknir eru í vinnslu.
Meðferð á verkjalínu hefur verið í boði frá því í september 2003. Þar sem mismundandi er hvernig meðferð fólk fær er erfitt að bera saman árangur. Fólk merkir inná verkjakvarða og svarar spurningum um heilsutengd lífsgæði og færni til að meta heildarútkomuna fyrir hvern og einn.