Algengar spurningar og svör

Algengar spurningar og svör

Hvað er í boði á Heilsustofnun NLFÍ?
Heilsustofnun NLFÍ er opin öllum sem þurfa að efla líkamlegt og andlegt þrek og þol, hvort sem þeir koma samkvæmt tilvísun frá lækni eða ekki. Boðið er upp á tvo valkosti við dvöl á HNLFÍ. Annars vegar Læknisfræðilega endurhæfingu og hins vegar hvíldar og hressingardvöl.

Hvað er læknisfræðileg endurhæfing?
Læknisfræðileg endurhæfing er endurhæfingarmeðferð samkvæmt þjónustusamningi HNLFÍ við Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið. Hér er samningurinn í heild sinni sem PDF skjal.

Hvað er innifalið í verði við læknisfræðilega endurhæfingu?
Innifalið í læknisfræðilegri endurhæfingu er öll meðferð, gisting, fulltfæði ásamt allri annarri þjónustu sem veitt er. Dvalargestir hafa frían aðgang að sundlaug og æfingarsal á auglýstum opnunartímum auk almennri dagskrá (kvöldvökur o.s.frv.). Sjá verðskrá fyrir læknisfræðilega endurhæfingu HÉR.

Hver er kostnaðurinn við læknisfræðilega endurhæfingu?
Læknisfræðileg endurhæfing er greidd að stórum hluta af íslenska ríkinu (ca. 70%) en sjúklingur greiðir sjálfur mismuninn (ca. 30%). Í því tilfelli er skilyrði að læknir sendi inn beiðni fyrir dvöl. Sjúklingur velur hvaða herbergi hann óskar að dvelja í, en hlutur sjúklings (svokallað sérdaggjald) er mishár eftir stærð og gæðum herbergis. Uppgefið verð er sá hluti er sjúklingur ber að greiða. Sjá verðskrá fyrir læknisfræðilega endurhæfingu HÉR.

Hversvegna er munur á verði herbergja?
Verðmunur er tilkominn vegna herbergja í mismunandi gæðaflokkum, en herbergin eru misvel búin ýmsum þægindum, s.s. eftir aldri og hvort herbergi eru með salerni og/eða sturtu, lýsing á herbergjum og verð er hægt að sjá HÉR.

Hvernig er sótt um dvöl í læknisfræðilegri endurhæfingu?
Skilyrði er að læknir sendi inn beiðni fyrir dvöl. Allir sem sækja um fá sent svarbréf þar sem fram kemur tilboð um dvöl og dvalartíma. Með svarbréfi fá sjúklingar sent eyðublað þar sem þeir þurfa að merkja við ýmsar óskir sínar, þ.m.t. óskir um herbergi. Meiri upplýsingar er hægt að sjá HÉR.

Hvað eru víxlböð - Kneipp böð og hvernig virka þau?
Víxlböð (Kneipp) er náttúrulegar lækningaaðferðir náðu miklum vinsældum um alla Evrópu á 19. öld, einkum í Þýskalandi. Það eru svonefndar náttúru- og baðlækningar með áherslu á náttúrulega næringu, hvíld og næga hreyfingu til að stuðla að heilsusamlegum lifnaðarháttum. Í Þýskalandi kom Sebastian Kneipp (1821-1897) þessum náttúrulegu lækningaaðferðum saman í kerfi, sem byggist einkum á baðlækningum. Aðferðir Kneipp stuðla að heildrænni meðferð, en einblína ekki einvörðungu á meinið sjálft. Þekkt aðferð eru svokölluð víxlböð, þar sem gengið er til skiptis í heitu og köldu vatni. Þessi aðferð eykur blóðflæði og þrek. Aðferðir Kneipp eru náskyldar hefðum og meðferðum, sem beitt hefur verið í Heilsustofnun NLFÍ frá því að hún tók til starfa árið 1955. Aðferðir Kneipp eru notaðar með góðum árangri í fjölmörgum Evrópulöndum, Asíu og Bandaríkjunum. Víxlböð eru góð við verkjum og þreytu í fótum sem geta m.a. stafað af æðaþrenglsum. Víxlböð taka 10-15 mínútur. Byrjað er í 3-6 mínútna heitu kálfadjúpu fótabaði (38-42°C). Síðan er farið í 10-30 sek. Kalt fótabað (15-20°C). Þetta er gert þrisvar. Gott er að hreyfa fæturnar á meðan. Alltaf er endað í kalda vatninu.

Hvaða meðferðir falla undir læknisfræðilega endurhæfingu?
Undir læknisfræðilega endurhæfingu falla 9 meðferðarlínur.

Verkjalína: Verkjameðferð, vegna stoðkerfisverkja. Annars vegar er um að ræða meðferð í verkjahópi en hins vegar á verkjalínu.
Gigtarlína: Meðferð vegna gigtarsjúkdóma, er ætluð þeim sem hafa gigtarsjúkdóma s.s. liðagigt, psoriasis gigt, hryggikt og útbreidda slitgigt. Meðferðin felst m.a. í líkamsþjálfun og meðferð sem reynt er að sníða að þörfum hvers og eins. Fræðslu um eðli sjúkdómsins og þætti sem geta bætt líðan og aukið færni, stuðningi til varanlegra lífsstílsbreytinga og hvatningu til sjálfshjálpar eftir að heim er komið.
Offitulína: Meðferð vegna offitu, markmið meðferðarinnar er að stuðla að varanlegri þyngdarstjórnun með lífsstílsbreytingum sem taka á mataræði, hugsun, hegðun og hreyfingu.
Hjartalína: Meðferð vegna hjartasjúkdóma, meðferð á hjartalínu tekur fjórar vikur og er ætluð þeim sem hafa andlegt og líkamlegt þrek og vilja til að taka þátt í þeirri meðferð sem er í boði. Markmiðið er að auka hæfni viðkomandi einstaklings til að lifa eðlilegu lífi þrátt fyrir sjúkdóminn.
Liðskiptalína: Meðferð á liðskiptalínu, er sérstaklega hugsuð fyrir þá sem farið hafa í liðskiptaaðgerð á mjöðmum og hnjám.
Bæklunarlína: Meðferð vegna afleiðinga slysa, Þeir sem hafa hlotið beinbrot, tognun eða taugaskaða af völdum slysa geta fengið þjálfun á Heilsustofnun NLFÍ.
Krabbameinslína: Meðferð vegna kabbameins, Um er að ræða endurhæfingardvöl til styrktar líkama og sál, eftir aðgerð, lyfja- eða geislameðferð vegna krabbameina.
Öldrunarlína: Markmiðið er að auka færni og sjálfsbjargargetu fólks, þannig að það geti lengur séð um sig sjálft og dvalist heimafyrir.
Stuðning og streitu lína: Á Heilsustofnun NLFÍ er boðið upp á þverfaglega meðferð við þreytu og streitu, áföllum og missi, þunglyndi og kvíða. Auk þess fellur hér undir aðstoð eftir erfið veikindi eða afleiðingar slysa. Meðferðin er alltaf samþætt þar sem lögð er áhersla á líkamlega þjálfun, hitameðferð og slökunarmeðferð samtímis er beitt viðtölum fagaðila, oftast með undirtónum hugrænnar atferlismeðferðar.

Hvað er Gjörhygli?
Orðið gjörhygli er þýðing á enska orðinu mindfulness og gjörhygli-hugleiðsla sem mindfulnes meditation. Gjörhygli á rætur sínar að rekja til aldagamallar hugleiðsluhefð austurlanda. Þar er litið á gjörhygli sem leið til að hjálpa okkur að sjá skýrar hvernig hugur okkar starfar og sem leið fyrir hvern sem er til þess að öðlast jafnlyndi og hugarró.Sjá nánar hér

Má reykja á Heilsustofnun? 
Fyrir þá sem dveljast á Heilsustofnun NLFÍ af öðrum ástæðum og vilja nota tækifærið til þess að hætta að reykja veitir Heilsustofnun NLFÍ stuðning við að hætta að reykja. Umhverfi Heilsustofnunar er reyklaust og því er tilvalið að nýta dvölina til að ná reykleysi. Í boði er ráðgjöf, fræðsla og stuðningsfundir í höndum hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða. Þessi meðferð er í boði árið um kring.

Hvað er heilsuefling?
Hvíldar og hressingardvöl er ætluð fyrir þá sem vilja koma til hvíldar, hressingar, til að efla heilsuna, vegna forvarna eða til að temja sér nýjan lífsstíl. Gesturinn ber allan kostnað sjálfur. Ekki er þörf á að læknir sendi inn beiðni. Sjá það sem er í boði HÉR.

Hvaða önnur þjónusta er í boði?
Eftirfarandi þjónusta er í boði:

Matstofan
Boðið er upp á heilsufæði í veitingasal HNLFÍ; morgunverð, hádegisverð, miðdagshressingu og kvöldverð.

Sérstök áhersla er lögð á grófmeti úr jurtaríkinu eins og til dæmis baunir, hýðishrísgrjón, ýmis konar heil korn og svo auðvitað grænmeti og ávexti. Fæðið inniheldur einnig egg og mjólkurvörur. Leitast við að nota eins lítið af salti, harðri fitu og sykri eins og mögulegt er. Það er stefna HNLFÍ að hafa sem minnst af unnum matvælum, við veljum okkar hráefni mjög vandlega og allur matur er eldaður frá grunni á staðnum. Við bökum okkar eigið brauð úr 100 % heilhveiti og uppistaðan í grænmetinu er það sem er lífrænt ræktað á staðnum. Boðið er upp á matreiðslunámskeið. Einnig er boðið upp á að matarþjónustu fyrir fyrirtæki.

Læknisþjónusta
Læknisþjónusta er í boði virka daga á milli 09.00-15.00. Í boði er skoðun og ráðgjöf. Tvennskonar læknisviðtöl eru í boði; almennt læknisviðtal sem er um 20 mínútur og sérhæft læknisviðtal sem er 40 mínútur.

Stakar meðferðir s.s. eins og nálastungur, heilsubað, sjúkranudd og leirbað - sjá frekari upplýsingar HÉR.

Sjúkraþjálfun
Göngudeild er starfrækt eftir kl. 15.30 á virkum dögum. Í boði er meðferð eða skoðun. Einnig er boðið upp á að útbúa skýrslur eða skriflegar leiðbeiningar.

Baðhúsið - Kjarnalundur
Baðhúsið er opið fyrir almenning eftir kl. 16. virka daga og um helgar.

Snyrtistofa Dittu
Á snyrtistofunni er boðið upp á alla alhliða snyrtingu s.s. fótsnyrtingu, handsnyrtingu, húðhreinsun, andlitsböð, litun og plokkun og háreyðingu með vaxmeðferð. Gjafabréf og snyrtivörur. Þriðjudaga og miðvikudaga 13-17
Fimmtudaga og föstudaga 11-17
Tímapantanir eru í síma 483 0273 eða 820 9476.
Opnunartími:

Hársnyrtistofan Gná

Boðið er upp á alhliða hársnyrtingu fyrir bæði dömur og herra.
Hársnyrtivörur frá Indola.
Opið alla virka daga.
Tímapantanir eru í síma 483 0274 eða 691 1036