Gigtarlína
Gigtarlína er ætluð þeim sem hafa gigtarsjúkdóma s.s. liðagigt, psoriasis gigt, hrygggikt og útbreidda slitgigt. Þeir þurfa að hafa getu til að taka þátt í meðferð í hóp og tileinkað sér fræðslu. Meðaldvalartími eru 4 vikur.
Markmið meðferðar er að:
- Draga úr verkjum
- Auka þrek og líkamlega færni
- Auka hæfni til að lifa sem eðlilegustu lífi þrátt fyrir sjúkdóminn
- Auka lífsgæði
Megináherslur meðferðar:
- Líkamsþjálfun sem sniðin er að þörfum hvers og eins ýmist sem einstaklingsmeðferð eða hópmeðferð.
- Fræðsla um eðli sjúkdómsins og þætti sem geta bætt líðan og aukið færni.
- Stuðningur til varanlegra lífsstílsbreytinga og hvatning til sjálfshjálpar.
Algengast er að þátttakendur stundi vatnsleikfimi, leikfimi af ýmsum toga, æfingar í tækjum, göngur, heilsuböð og slökun. Læknir metur þörf fyrir sjúkranudd, sjúkraþjálfun, nálarstungur, vaxmeðferð og leirmeðferð.
Fjölbreytt fræðsla er í boði á heilsustofnun.
Á heilsustofnun er starfandi gigtarteymi sem vinnur saman að framkvæmd meðferðar. Í teyminu eru: læknir, hjúkrunarfræðingur, sjúkraþjálfari, sjúkranuddari, íþróttakennari og sjúkraliði. Auk þess koma næringarráðgjafi og sálfræðingur að meðferð eftir þörfum.

