Liðskiptalína
Línan er ætluð þeim sem hafa farið í liðskiptaaðgerðir á mjöðm, hné eða öxl. Meðaldvalartími eru 4 vikur. Æskilegt að einstaklingur komi til meðferðar innan sex mánaða frá aðgerð.
Markmið meðferðar eru að:
- Draga úr verkjum
- Auka líkamlega færni og þrek
- Auka hæfni til að lifa sem eðlilegustu lífi eftir liðskiptin
- Auka lífsgæði
Meðferð er fólgin í sjúkraþjálfun, æfingameðferð i vatni og almennri líkamsþjálfun sem sniðin er að þörfum hvers og eins. Læknir og sjúkraþjálfari meta þörf fyrir aðra meðferð.
Fjölbreytt fræðsla er í boði á heilsustofnun.
Á heilsustofnun er starfandi liðskiptateymi sem vinnur saman að framkvæmd meðferðar. Í teyminu eru: læknir, hjúkrunarfræðingur, sjúkraþjálfari, íþróttakennari og sjúkraliði. Auk þess koma næringarráðgjafi og sálfræðingur að meðferð eftir þörfum.

