Taugasjúkdómalína

Línan er ætluð þeim sem eru með taugasjúkdóma af ýmsum toga s.s. parkinson, MS, MND eða glíma við afleiðingar heilablóðfalls. Meðaldvalartími eru 4 vikur.

Markmið meðferðar eru að:

  • Auka líkamlega færni og þrek
  • Auka hæfni til að lifa sem eðlilegustu lífi þrátt fyrir sjúkdóminn
  • Bæta andlega líðan
  • Auka lífsgæði

Algengast er að meðferðin felist í sjúkraþjálfun og almennri líkamsþjálfun sem sniðin er að þörfum hvers og eins.

þátttakendur stunda t.d. vatnsleikfimi, leikfimi af ýmsum toga, æfingar í tækjum, göngur og slökun. Læknir metur þörf fyrir sjúkranudd, nálarstungur,heilsuböð , leirmeðferð og viðtalsmeðferð.

Fjölbreytt fræðsla er í boði á Heilsustofnun.

Á Heilsustofnun er starfandi taugasjúkdómateymi sem vinnur saman að framkvæmd meðferðar. Í teyminu eru: læknir, hjúkrunarfræðingur, sjúkraþjálfari, íþróttakennari og sjúkraliði. Auk þess koma næringarráðgjafi og sálfræðingur að meðferð eftir þörfum.