Hvernig sótt er um dvöl á HNLFI
Heilsustofnun NLFÍ býður upp á tvenns konar dvalarmöguleika:
I. Læknisfræðileg endurhæfing, en þá er meðferð greidd að stórum hluta af íslenska ríkinu.
Í því tilfelli er skilyrði að læknir sendi inn beiðni fyrir dvöl. Læknir getur farið inn á
www.hnlfi.is og valið “fyrir fagfólk/beiðnir” og útfyllt beiðni. Beiðnin sendist í fax 483 0320
eða póstfang HNLFÍ b/t Innlagnaritari, Grænumörk 10, 810 Hveragerði.
Allir sem sækja um fá sent svarbréf þar sem kemur fram tilboð um dvöl og dvalartíma. Hægt
er að velja á milli einbýli eða tvíbýli, en dvalargjaldið fer eftir gistiaðstöðunni. Með svarbréfi fá
sjúklingar sent eyðublað þar sem þeir þurfa að merkja við ýmsar séróskir sínar, þ.m.t. um
herbergi.
Kynning á meðferðum og verðskrá er á titilsíðu undir fyrirsögninni "Læknisfræðileg endurhæfing".
II. Hvíld, slökun og heilsuefling, en þá koma dvalargestir á eigin vegum og bera allan kostnað
sjálfir. Þá er ekki þörf á að læknir sendi inn beiðni. Í þessu tilfelli hringir gesturinn í
innlagnaritara í síma 483 0300 og sækir um dvöl eða sendir bréf á veffang beidni@hnlfi.is.
Frekari kynning á þeirri þjónustu sem er í boði er undir fyrirsögninni “Hvíld, slökun og heilsuefling”.
Hér er hægt að nálgast upplýsingar um það sem þarf að hafa með sér þegar komið er í dvöl auk þess að í þessu skjali eru aðrar praktískar upplýsingar. Sækja skjalið hér.
Allar frekari upplýsingar eru veittar af innlagnaritara í síma 483 0300. Símatími innlagnafulltrúa er alla virka daga frá kl. 9:00 til 10:00 og eftir hádegi frá kl..14:00 til 15:00
Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á veffang beidni@hnlfi.is.


