Verðskrá fyrir læknisfræðilega endurhæfingu.
Við læknisfræðilega endurhæfingu er meðferð greidd að stórum hluta af íslenska ríkinu (ca. 70%). Í því tilfelli er skilyrði að læknir sendi inn beiðni fyrir dvöl. Dvalargestir geta valið um einbýli eða tvíbýli, en dvalargjald sjúklingsins fer eftir gistiaðstöðunni.
Verðið er hlutur sjúklingsins og er miðað við verð á mann á viku. Gestum skal bent á að þeir geta sótt um niðurgreiðslu á gjaldinu hjá ýmsum sjóðum (sjúkrasjóðum o.s.frv.). Verðskráin gildir frá 1. janúar 2011.

 
Lýsing á gistiaðstöðu HNLFÍ
Sprengisandur býður upp á 22 eins manns herbergi með vaski.  Í hverju herbergi er ný 90x200 rúm með heilsudýnu, skrifborð og stóll, útvarp, hægindastóll, náttborð, fataskápur, borðlampi, veggklukka og öryggishnappur sem er tengdur fram á hjúkrunarvakt. Húsgögn eru af eldri gerðinni en hefur verið haldið vel við. Sprengisandur var fyrst tekinn í notkun árið 1966. WC, sturta og sjónvarp eru frammi á gangi.
 
Langisandur var tekinn í notkun árið 1959. Þar eru tvær tegundir tveggja manna herbergja. Öðru megin gangsins eru 10 herbergi með wc, vaski án sturtu og sjónvarps, sem er frammi á gangi. Hinum megin gangsins eru 8 herbergi með vaski en án wc, sturtu og sjónvarps, sem er frammi á gangi. Í hverju herbergi er rúm með góðri dýnu (80x200) skrifborð og stóll, útvarp, hægindastóll, náttborð, fataskápur, borðlampi, veggklukka og öryggishnappur sem er tengdur  fram á hjúkrunarvakt. Öll húsgögn eru af eldri gerðinni en hefur verið haldið vel við. 
 
Kirkjustræti var tekið í notkun 1959. Þar eru þrjú eins manns herbergi með vaski en án wc, sturtu og sjónvarps, sem er frammi á gangi. Í hverju herbergi er rúm með góðri dýnu (80x200) skrifborð og stóll, útvarp, hægindastóll, náttborð, fataskápur, borðlampi, veggklukka og öryggishnappur sem er tengdur  fram á hjúkrunarvakt. Öll húsgögn eru af eldri gerðinni en hefur verið haldið vel við. 
 
Gullströndin var tekin í notkun árið 1976.  Þar eru 16 eins manns herbergi og 12 tveggja manna herbergi. Öll herbergin eru með wc, vaski  og sturtu en án sjónvarps sem er frammi á setustofu.  Í hverju herbergi er rúm með góðri dýnu (80x200) skrifborð og stóll, stakt borð, útvarp, veggklukka, hægindastóll, náttborð, fataskápur, borðlampi, bókahilla, kommóða, sími, myrkvunargluggatjöld og öryggishnappur sem er tengdur  fram á hjúkrunarvakt. Húsgögn eru af eldri gerðinni í tveggja manna herbergjunum en nýleg í eins manns herbergjunum. 
 
Demantsströndin var tekin í notkun 1982. Þar eru 16 eins manns herbergi og 12 tveggja manna herbergi. Öll herbergin eru með wc, vaski  og sturtu, sjónvarpi og síma.  Í hverju herbergi er rúm með góðri dýnu (80x200) skrifborð og stóll, stakt borð, útvarp, veggklukka, spegill, hægindastóll, náttborð, fataskápur, borðlampi, bókahilla, kommóða, myrkvunargluggatjöld og öryggishnappur sem er tengdur  fram á hjúkrunarvakt. Húsgögn eru öll nýleg. 
 
Perluströndin var tekin í notkun 2004. Þar eru 12 eins manns herbergi og 8 tveggja manna herbergi. Öll herbergin eru með wc, vaski  og sturtu, sloppi, baðhandklæðum, sjónvarpi og síma.  Í hverju herbergi er rúm með góðri dýnu (90x200) skrifborð og stóll, stakt borð, útvarp, klukka, spegill, hægindastóll, náttborð, fataskápur, borðlampi, bókahilla, kommóða, myrkvunargluggatjöld og öryggishnappur sem er tengdur  fram á hjúkrunarvakt. Húsgögn eru öll ný. 
 
Íbúðir
HNLFÍ hefur 4 íbúðir sem hentar þeim sem vilja vera útaf fyrir sig. Íbúðirnar eru um 50 fm. að stærð og vel búnar öllum helstu þægindum. Svefnherbergi er með tvíbreiðu rúmi og sérstakri heilsudýnu. Í stofu er svefnsófi fyrir tvo, stofuborð, skrifborð, tölva, sjónvarp, Video/DVD, útvarp og sími. Baðherbergi er með sturtu. Eldhús er með borðstofuborði fyrir fjóra og öllum helstu eldhúsáhöldum. Íbúðinni fylgja handklæði og sloppar.
Verðskrá Nánari upplýsingar eru fúslega veittar í síma 483 0300